4. október 2008

Ekki hrifin af kuldabola

Ég held að líkaminn minn sé ekki gerður fyrir kalt veður, því um leið og snjórinn kom varð húðin mín eins og þurrt hreistur, hárið mitt eins og strákústur og neglurnar mínar brotna sífellt.
Í 20-25´C og smá raka er líkami minn hins vegar í góðu lagi. Húðin mín er mjúk, hárið mitt lyftist og það er eins og ég sé nýkomin úr hárgreiðslu á hverjum degi og neglurnar mínar vaxa og vaxa.
En ég bý á Íslandi og verð því að sætta mig við þetta, eiga nóg af kremum og hlakkað til næstu sólarferðar...

30. júní 2008

Fimmvörðuháls

Gærdagurinn var örugglega lengsti og erfiðasti dagur lífs míns. Ég og Frikki löbbuðum nefnilega fimmvörðuháls. Þótt að ég sé mjög þreytt og aum eftir þessa göngu er ég alveg í skýjunum þar sem það er rosalegt egóbúst að ná að klára þessa göngu.